Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 448. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 1125 — 448. mál.
um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða, nr. 38 15. maí 1990, með síðari breytingum.
a. Við 1. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Þó skal samanlögð krókaaflahlutdeild fiskiskipa í eigu einstakra aðila, einstaklinga eða lögaðila, eða í eigu tengdra aðila ekki nema hærra hlutfalli en 4% af þorski og 5% af ýsu miðað við heildarkrókaaflahlutdeild í hvorri tegund.
b. Við fyrri málslið 2. mgr. bætist: eða meira en 5% af heildarverðmæti krókaaflahlutdeildar.
Þegar lög þessi hafa öðlast gildi skal fella meginmál þeirra inn í lög nr. 38/1990, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, og gefa þau út svo breytt með samfelldri greinatölu og kaflanúmerum og samfelldri röð töluliða, stafliða og ákvæða til bráðabirgða sem enn hafa gildi. Jafnframt verða eftirfarandi breytingar á lögunum:
a. Við 6. gr. b bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Þó er ráðherra heimilt að veita krókaaflamarksbátum leyfi til að stunda veiðar á botndýrum með þeim veiðarfærum sem til þarf, svo sem plógum og gildrum, svo og til hrognkelsaveiða í net.
b. Lokamálsliður 6. mgr. 11. gr. orðast svo: Óheimilt er að framselja aflahlutdeild skips nema fyrir liggi samþykki þeirra aðila sem samningsveð áttu í skipinu 1. janúar 1991.
c. Við 1. málsl. 3. mgr. 17. gr. bætist: og er skipstjórum skylt að veita þeim aðstoð, sbr. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 79 26. maí 1997.
Þrátt fyrir lokamálslið 1. mgr. 23. gr. skal endurgreiða útgerð gjald vegna úthlutaðs aflamarks í úthafsrækju á fiskveiðiárinu 2005/2006. Veiðigjald skv. V. kafla laganna vegna úthafsrækju fiskveiðiárin 2005/2006, 2006/2007 og 2007/2008 skal innheimt í lok hvers fiskveiðiárs miðað við landaðan úthafsrækjuafla fiskiskips á því fiskveiðiári.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 1125 — 448. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða, nr. 38 15. maí 1990, með síðari breytingum.
(Eftir 2. umr., 4. apríl.)
1. gr.
2. gr.
a. Við 1. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Þó skal samanlögð krókaaflahlutdeild fiskiskipa í eigu einstakra aðila, einstaklinga eða lögaðila, eða í eigu tengdra aðila ekki nema hærra hlutfalli en 4% af þorski og 5% af ýsu miðað við heildarkrókaaflahlutdeild í hvorri tegund.
b. Við fyrri málslið 2. mgr. bætist: eða meira en 5% af heildarverðmæti krókaaflahlutdeildar.
3. gr.
4. gr.
Þegar lög þessi hafa öðlast gildi skal fella meginmál þeirra inn í lög nr. 38/1990, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, og gefa þau út svo breytt með samfelldri greinatölu og kaflanúmerum og samfelldri röð töluliða, stafliða og ákvæða til bráðabirgða sem enn hafa gildi. Jafnframt verða eftirfarandi breytingar á lögunum:
a. Við 6. gr. b bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Þó er ráðherra heimilt að veita krókaaflamarksbátum leyfi til að stunda veiðar á botndýrum með þeim veiðarfærum sem til þarf, svo sem plógum og gildrum, svo og til hrognkelsaveiða í net.
b. Lokamálsliður 6. mgr. 11. gr. orðast svo: Óheimilt er að framselja aflahlutdeild skips nema fyrir liggi samþykki þeirra aðila sem samningsveð áttu í skipinu 1. janúar 1991.
c. Við 1. málsl. 3. mgr. 17. gr. bætist: og er skipstjórum skylt að veita þeim aðstoð, sbr. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 79 26. maí 1997.
Ákvæði til bráðabirgða.
I.

II.