Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 802. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Prentað upp.

Þskj. 1279  —  802. mál.
Ráðherra.




Fyrirspurn



til samgönguráðherra um öryggisgæslu við erlend kaupskip.

Frá Magnúsi Þór Hafsteinssyni.



     1.      Hvernig er öryggisgæslu háttað við erlend kaupskip sem liggja við Korngarð, Vogabakka, Ártúnshöfða og Vesturhöfn í Reykjavík?
     2.      Hafa orðið breytingar á tilhögun og framkvæmd öryggisgæslu á þessum stöðum á undanförnum mánuðum og ef svo er, hvaða breytingar hafa verið gerðar?