Ríkisútvarpið ohf.

Mánudaginn 22. janúar 2007, kl. 11:39:00 (3586)


133. löggjafarþing — 56. fundur,  22. jan. 2007.

Ríkisútvarpið ohf.

56. mál
[11:39]
Hlusta

Frsm. minni hluta menntmn. (Mörður Árnason) (Sf):

Forseti. Ég á tvenns konar erindi í þennan ræðustól, annars vegar að kynna breytingartillögu sem við höfum flutt, fulltrúar stjórnarandstöðunnar í menntamálanefnd, auk mín hv. þm. Björgvin G. Sigurðsson, Einar Már Sigurðarson, Kolbrún Halldórsdóttir og Magnús Þór Hafsteinsson. Hún er af okkar hálfu lokatilraun til þess að koma stjórnarflokkunum til sátta í þessu máli, sátta sem eru mikilvæg fyrir Ríkisútvarpið og fyrir þjóðina. Efnisinnihald hennar er það að gildistöku laga, ef frumvarpið verður að lögum, verði frestað fram yfir kosningar.

Hitt erindi mitt í ræðustólinn er að kynna sameiginlega yfirlýsingu Samfylkingarinnar, Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs og Frjálslynda flokksins um Ríkisútvarpið 22. janúar 2007 sem var flutt á blaðamannafundi hér rétt áðan. Hún er svona, með leyfi forseta, undir fyrirsögninni Samstaða um Ríkisútvarpið, traust og sjálfstætt almannaútvarp:

„Stjórnarandstöðuflokkarnir á Alþingi, Samfylkingin, Vinstri hreyfingin – grænt framboð og Frjálslyndi flokkurinn, hafa lagt áherslu á það í umræðum um RÚV-frumvarpið að ná þurfi víðtækri sátt í samfélaginu um þær framtíðarbreytingar sem gerðar verði. Stjórnarandstaðan vill með því tryggja að hér verði ríkisútvarp en ekki ríkisstjórnarútvarp.

Ríkisstjórnarflokkarnir, Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur, hafa kosið að afgreiða frumvarp um Ríkisútvarpið í miklum ágreiningi við stjórnarandstöðuna. Forustumenn þessara flokka hafa hafnað öllum sáttaboðum. Ríkisstjórnin hefur með þessu kosið að setja pólitíska hagsmuni sína ofar velferð Ríkisútvarpsins og ljóst er að nýrrar ríkisstjórnar bíður það verkefni að taka málefni Ríkisútvarpsins til endurskoðunar með það í huga að skapa um þau sátt til frambúðar. Samfylkingin, Vinstri hreyfingin – grænt framboð og Frjálslyndi flokkurinn eru sammála um þessi markmið við slíka endurskoðun:

1. Ríkisútvarpið verður ekki hlutafélag en fundnar leiðir til aukinnar skilvirkni og svigrúms í rekstri með nýjum lagaramma sem tryggir sjálfstæði og fagleg viðhorf við dagskrárákvarðanir og ráðningarmál.

2. Ríkisútvarpið verður almannaútvarp með skýrt afmarkað hlutverk og vel skilgreindar starfsreglur. Ríkisútvarpið tryggir fjölbreytni í ljósvakafjölmiðlun á Íslandi. Það annast vandaðan fréttaflutning, framleiðslu og miðlun menningarefnis af margvíslegu tagi, er vettvangur lýðræðislegrar umræðu og hefur víðtækt fræðsluhlutverk. Í sjónvarpi er innlent efni í öndvegi með þátttöku íslenskra framleiðenda. Áhersla er lögð á efni fyrir börn og unglinga í öllu starfi Ríkisútvarpsins.

3. Stjórn Ríkisútvarpsins verður rekstrarstjórn. Hún verður þannig skipuð að sem breiðust samstaða myndist en störf hennar mótist ekki af ríkisstjórnarmeirihluta hverju sinni. Dagskrárákvarðanir allar eru í höndum starfsmanna. Akademía eða hlustendaþing er með í ráðum við meiri háttar rekstrarákvarðanir og mótun dagskrárstefnu til langs tíma.

4. Ríkisútvarpið verður sjálfstætt, óháð stjórnmála- og viðskiptahagsmunum. Starfsmenn þess eiga að búa við ritstjórnarlegt sjálfstæði sem m.a. tryggir faglega umfjöllun um menn og málefni á vettvangi stjórnmála og atvinnulífs. Skýr aðgreining verður mörkuð í dagskrá Ríkisútvarpsins milli dagskrárgerðar og auglýsinga og settar verða reglur um kostun sem taka mið af þessu.

5. Ríkisútvarpið verður fjármagnað annars vegar með ríkisframlagi og sérstökum tekjum en hins vegar með auglýsingatekjum. Tryggt verður að auglýsingatekjur hafa ekki áhrif á dagskrárframboð Ríkisútvarpsins og rýra ekki um of svigrúm annarra ljósvakamiðla á þeim markaði.

6. Málefni starfsmanna hjá Ríkisútvarpinu fylgja meginreglum og hefðum á opinberum vinnumarkaði og eru gædd þeim sveigjanleik sem fjölmiðill þarf á að halda. Við mótun nýs lagaramma verður farið yfir réttindi og skyldur starfsmanna ásamt starfsmönnum og samtökum þeirra með þetta markmið í huga.“

Hér lýkur, forseti, þessari sameiginlegu yfirlýsingu stjórnarandstöðuflokkanna þriggja og hér lýkur af okkar hálfu, stjórnarandstöðunnar, umræðum um þetta mál að sinni, eins og oft hefur verið sagt í umræðunni í þessum sal. Við höfum með þátttöku okkar í henni komið málstað okkar vel á framfæri og það er ljóst að sáttaboðum þeim sem við gáfum svigrúm til með þessari umræðu hefur verið hafnað af hálfu stjórnarinnar og það er miður.