133. löggjafarþing — 69. fundur, 12. feb. 2007.
frammíköll.
Um þetta vill forseti segja að sú regla gildir í þessari umræðu að þingmenn eru teknir á mælendaskrá í þeirri röð sem þeir biðja um orðið, og því miður er það svo að ekki komast allir þingmenn að í þessari umræðu þar sem samkvæmt þingsköpum er aðeins gert ráð fyrir 20 mínútum. Þetta hyggur forseti að hv. þingmönnum sé fullkunnugt um.