Stjórnarskipunarlög

Mánudaginn 12. mars 2007, kl. 18:02:14 (6180)


133. löggjafarþing — 86. fundur,  12. mars 2007.

stjórnarskipunarlög.

683. mál
[18:02]
Hlusta

viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég ítreka það sem ég sagði áður, við höfum þegar boðið stjórnarandstöðunni til samstarfs um þetta mál, og ég heyri á fulltrúum stjórnarandstæðinga hér í umræðunni að þeir vilja taka það til skoðunar. Nú fer þetta mál til umræðu í nefnd sem fjallar um það og við bjóðumst til að halda áfram að líta þar á allar hliðar þessa máls.