133. löggjafarþing — 10. fundur, 11. okt. 2006.
staðan á viðskiptabankamarkaði.
107. mál
Hæstv. forseti. Ég get borið fulla virðingu fyrir þeim sjónarmiðum sem hv. þingmaður lét í ljós um þessi gjöld um leið og ég minni á samningsfrelsi og samningsábyrgð í samfélaginu.
Ég get líka getið þess rétt til upplýsingar að það er mikið unnið að því að þroska áfram rekstrarskipulag og rekstrarform í greiðslukerfunum og einmitt með tilliti til aðkomu og tengsla við bankana.