Ríkisútvarpið ohf.

Mánudaginn 16. október 2006, kl. 17:15:45 (495)


133. löggjafarþing — 12. fundur,  16. okt. 2006.

Ríkisútvarpið ohf.

56. mál
[17:15]
Hlusta

menntamálaráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Merði Árnasyni fyrir þessa athugasemd og rétt að koma því á framfæri að það stendur sem kom m.a. fram, að ég tel, fyrir hæstv. menntamálanefnd. Það mun verða tryggt. Það er til skriflega að það mun vera tryggt að eiginfjárhlutfall Ríkisútvarpsins ohf. við stofnun þess verði 10–12%.