Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 639. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 1281  —  639. mál.




Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. um náttúruvernd, nr. 44/1999, með síðari breytingum.

Frá umhverfisnefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Berg Sigurðsson frá Landvernd, Svein Jakobsson frá Náttúrufræðistofnun, Árna Finnsson frá Náttúruverndarsamtökum Íslands, Sigrúnu Ágústsdóttur og Sigurð Ármann Þráinsson frá umhverfisráðuneyti og Árna Bragason og Davíð Egilson frá Umhverfisstofnun.
    Með frumvarpinu er kveðið á um tvenns konar breytingar á lögum um náttúruvernd. Er annars vegar lagt til að möguleikar til að kæra þær stjórnvaldsákvarðanir sem teknar eru á grundvelli laganna verði auknir og hins vegar er lagt til að kveðið verði á um aukna vernd bergtegunda. Hvað síðari breytinguna varðar er lagt til að ákvæði náttúruverndarlaga verði styrkt þannig að þau nái jafnframt til bergtegunda og bergforma og að óheimilt verði að losa um, nema brott eða skemma sjaldgæfar tegundir steinda og bergs sem friðunarákvæðin ná til. Þá er í frumvarpinu kveðið á um að óheimilt sé að nema brott eða losa steingervinga af fundarstað.
    Í 4. gr. er kveðið á um að innan friðlýstra svæða verði óheimilt að losa um, nema á brott eða skemma hrafntinnu í formi bergglers og tæra silfurbergskristalla lengri en 5 cm og einnig að hið sama gildi um sjaldgæfar tegundir steinda og bergs. Nefndin telur ákvæði 4. gr. frumvarpsins ekki nægilega vel útfært. Hún telur að á grundvelli 3. gr. frumvarpsins sé unnt að vernda hrafntinnu og silfurberg og leggur því til að 4. gr. frumvarpsins falli brott. Nefndin hvetur til þess að frekar verði hugað að efnisatriðum 4. gr.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:

    4. gr. falli brott.

Alþingi, 16. mars 2007.



Guðlaugur Þór Þórðarson,


form., frsm.


Ásta R. Jóhannesdóttir.


Guðjón Ólafur Jónsson.



Mörður Árnason.


Arnbjörg Sveinsdóttir.


Rannveig Guðmundsdóttir.



Kjartan Ólafsson.


Sigurrós Þorgrímsdóttir.


Kolbrún Halldórsdóttir.