Öryggi raforkuvirkja, neysluveitna og raffanga

Fimmtudaginn 08. maí 2008, kl. 14:27:46 (7303)


135. löggjafarþing — 102. fundur,  8. maí 2008.

öryggi raforkuvirkja, neysluveitna og raffanga.

541. mál
[14:27]
Hlusta

Frsm. viðskn. (Guðfinna S. Bjarnadóttir) (S):

Frú forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti viðskiptanefndar um frumvarp til laga um um breytingu á lögum nr. 146/1996, um öryggi raforkuvirkja, neysluveitna og raffanga.

Lagt er til að við núverandi lög frá 1996 bætist fjórar nýjar greinar. Þær fjalla um skilyrði fyrir löggildingu og takmarkaða löggildingu til rafvirkjastarfa við háspennuvirki og lágspennuvirki.

Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Atla Frey Guðmundsson og Jón Ögmund Þormóðsson frá viðskiptaráðuneyti.

Með frumvarpinu er lagt til að ákvæði um löggildingu rafverktaka verði sett í lög um öryggi raforkuveitna, neysluveitna og raffanga en hingað til hafa þessi ákvæði verið í reglugerð. Frumvarpið er m.a. lagt fram vegna athugasemda umboðsmanns Alþingis, samanber mál nr. 4388/2005.

Rétt er að taka fram að á vegum viðskiptaráðuneytis stendur yfir heildarendurskoðun á ákvæðum laganna.

Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með breytingum sem gerð er tillaga um í sérstöku þingskjali en þær eru flestar tilkomnar vegna athugasemda frá Neytendastofu sem annast löggildingu rafverktaka.

Birkir J. Jónsson og Höskuldur Þórhallsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Undir þetta rita 7. maí 2008, hv. þingmenn Ágúst Ólafur Ágústsson, formaður nefndarinnar, Guðfinna S. Bjarnadóttir, Jón Bjarnason, Birgir Ármannsson, Ellert B. Schram, Jón Gunnarsson og Björk Guðjónsdóttir.