Embætti umboðsmanns sjúklinga

Miðvikudaginn 17. október 2007, kl. 14:47:51 (715)


135. löggjafarþing — 11. fundur,  17. okt. 2007.

embætti umboðsmanns sjúklinga.

115. mál
[14:47]
Hlusta

heilbrigðisráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S):

Virðulegi forseti. Mér hefur borist fyrirspurn frá hv. þm. Þorvaldi Ingvarssyni um það hvort ég hafi í hyggju að koma á fót embætti umboðsmanns sjúklinga.

Ég tel að hv. þingmaður veki með spurningu þessari athygli á mjög mikilvægu máli. Ég skil spurningu hans á þann veg að þörf sé á því að sjúklingar geti leitað sér aðstoðar innan heilbrigðis- og tryggingakerfisins þar sem oft getur verið um mjög flókna ferla að ræða, eins og hv. þingmaður rakti í fyrirspurn sinni, og sökum þess geti þeir átt í erfiðleikum með að sækja rétt sinn eða aðrar upplýsingar og þjónustan geti virst mörgum sem völundarhús.

Ég tel að þetta verkefni megi nálgast á ýmsa vegu og jafnvel án stofnunar nýs opinbers embættis. Ég hef í hyggju, eins og komið hefur fram, að beita mér fyrir margs konar einföldun á þeim reglum sem að sjúklingum snúa en slík einföldun er eins og kunnugt er í anda stefnu núverandi ríkisstjórnar. Ég vil í þessu sambandi minna á að nefnd er að hefja störf um einföldun á greiðsluþátttöku sjúklinga og byrjar hún á því að skoða sérstaklega það sem snýr að lyfjamálum. Einnig verður farið í að einfalda aðra þætti sem að sjúklingum snúa. Það er ekki síst mikilvægt að hafa góðar upplýsingar til sjúklinga eða aðstandenda þeirra og að þær liggi fyrir hjá þeim stofnunum þar sem fólk þarf að leita bóta, réttinda, upplýsinga eða annars réttar síns, bæði innan sjúkratrygginga og innan almannatrygginga. Ég hef einnig áhuga á að bæta aðkomu sjúklinga að ýmsum ákvarðanatökum innan heilbrigðiskerfisins, því að það er mjög mikilvægt að rödd hins almenna borgara og þess sem þarf að njóta þjónustunnar komi vel fram. Slíkt er að sjálfsögðu forsenda þess að þjónustan sé ásættanleg fyrir alla. Frekari útfærsla á þessum þáttum er nú þegar í vinnslu og óhjákvæmilega tengist hún m.a. þeirri vinnu sem er í gangi um tilfærslu verkefna milli ráðuneyta en hún mun liggja fyrir í lok þessa árs.

Ég vil samt sem áður minna á að þegar um er að ræða faglegar kvartanir eða kæru á heilbrigðisstarfsmenn eða heilbrigðisstofnanir þá er landlæknir lögbundinn móttakandi á slíku hafi kvörtunum ekki verið sinnt innan viðkomandi stofnana.

Virðulegi forseti. Svar mitt til hv. þingmanns er því það að ég hef ekki í hyggju að koma nýju embætti á laggirnar að svo stöddu en mun nálgast vandann á annan hátt. Ég vona að þessi orð mín svari nægilega fyrirspurn hv. þingmanns.