135. löggjafarþing — 41. fundur, 11. des. 2007.
aukatekjur ríkissjóðs.
234. mál
Hæstv. forseti. Eins og fram kom er ég með á nefndaráliti efnahags- og skattanefndar en með fyrirvara þó. Ég vil biðja hv. formann nefndarinnar og framsögumann, Pétur H. Blöndal, að minna okkur á hve há gjöldin fyrir vegabréfsáritanir eru og um hve miklar hækkanir er þar að ræða því að ef ég man rétt sneri fyrirvari minn fyrst og fremst að þeim þætti.