135. löggjafarþing — 44. fundur, 13. des. 2007.
frestun á fundum Alþingis.
320. mál
Herra forseti. Ég mæli fyrir tillögu til þingsályktunar um samþykki til frestunar á fundum Alþingis skv. 1. mgr. 23. gr. stjórnarskrárinnar. Tillagan hljóðar svo:
„Alþingi ályktar að veita samþykki til þess að fundum þingsins verði frestað frá 13. desember 2007 eða síðar, ef nauðsyn krefur, til 15. janúar 2008.“
Tillagan skýrir sig sjálf.