Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 75. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 75  —  75. mál.




Fyrirspurn



til forsætisráðherra um Árneshrepp.

Frá Jóni Bjarnasyni.



     1.      Hvað líður framkvæmd tillagna nefndar sem ríkisstjórnin skipaði í samræmi við þingsályktun Alþingis „um aðgerðir til verndunar búsetu og menningarlandslags í Árneshreppi“ (55. mál 128. löggjafarþings)?
     2.      Til hvaða annarra aðgerða hyggst ríkisstjórnin grípa sem styrki byggð og búsetu í Árneshreppi?