Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 360. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 601  —  360. mál.




Tillaga til þingsályktunar



um mótun reglna um verkferla og hæfnismat við opinberar embættisveitingar.

Flm.: Árni Þór Sigurðsson, Bjarni Harðarson, Álfheiður Ingadóttir,
Jón Magnússon, Steinunn Þóra Árnadóttir.


    Alþingi ályktar að fela forsætisráðherra að skipa nefnd með þátttöku allra þingflokka er hafi það verkefni að móta reglur og eftir atvikum semja frumvarp til laga um verkferla og meðferð og þýðingu faglegs hæfnismats við skipan í opinber embætti. Nefndin kanni m.a. kosti þess að faglegar hæfnismatsnefndir fái víðara verksvið og veiti umsagnir um fleiri embætti en nú gildir.
    Stefnt skal að því að nefndin ljúki störfum fyrir 1. október 2008.

Greinargerð.


    Opinberar stöðuveitingar eru vandmeðfarnar en vekja oft harðar deilur og valda kærum. Mörg dæmi eru um það að umboðsmaður Alþingis eða kærunefnd jafnréttismála hafi fengið slík mál til umfjöllunar og komist að þeirri niðurstöðu að einstakar stöðuveitingar hafi ekki byggst á málefnalegum sjónarmiðum eins og allar stjórnvaldsákvarðanir verða að gera. Þvert á móti hafi geðþótti eða eigið mat einstakra ráðherra verið látið ráða, jafnvel í tilfellum þar sem sérstakar hæfnisnefndir hafa fjallað um umsóknir og skilað rökstuddu áliti. Það er staða sem samrýmist ekki sífellt harðari kröfum til opinberrar stjórnsýslu.
    Það er mikilvægt að almenningur beri traust til stjórnsýslunnar og geti reitt sig á að stjórnvaldsákvarðanir eins og opinberar stöðuveitingar standist skoðun þannig að umsækjendur um opinbert starf geti gengið út frá því sem vísu að þeir séu metnir á grundvelli málefnalegra sjónarmiða og þeirra krafna sem gerðar eru til viðkomandi starfs og auglýstar hafa verið.
    Embætti í dómskerfinu eru sérstaklega mikilvæg í þessu tilliti enda dómsvaldið eitt af grunnstoðum þrískiptingar ríkisvaldsins. Enginn vafi má leika á um hlutleysi dómstóla eða á því að dómarar séu valdir til starfa á faglegum forsendum eingöngu. Því er ástæða til að nefndin skoði sérstaklega hvernig skipan dómara í embætti verði best háttað þannig að hún verði ekki tortryggð heldur þvert á móti auki traust almennings á dómskerfinu.
    Algengt er að veitingavaldið (ráðuneytið) leiti til ráðningar- og mannauðsráðgjafa við mat á umsækjendum. Í nokkrum tilvikum er kveðið á um að sérstakar hæfnisnefndir eða dómnefndir fjalli um umsækjendur og meti hæfi þeirra og hæfni. Er það m.a. venjan við stöður við háskóla og dómstóla. Hlutverk slíkra hæfnisnefnda má ekki vera neinum vafa undirorpið, né heldur þýðing þess mats sem þær vinna og að hve miklu leyti veitingavaldshafinn er bundinn af áliti matsnefnda. Enn fremur er full ástæða til að skoða hvort slíkar hæfnisnefndir eigi við í fleiri tilvikum en nú er.
    Ríkar ástæður eru til að móta sérstaka verkferla við skipan í opinber embætti og kanna með hvaða hætti það verður best gert. Kemur þar hvort tveggja til greina að setja sérstök lög um þessi málefni eða að samþykkja sérstakar reglur sem gefnar væru út af forsætisráðherra.
    Í þeim tilgangi að móta slíkar reglur eða eftir atvikum að semja frumvarp til laga er hér lagt til að forsætisráðherra skipi nefnd með þátttöku allra þingflokka er ljúki störfum fyrir þingsetningu næstkomandi haust svo að nýjar reglur og eftir atvikum ný lög geti tekið gildi í byrjun árs 2009.