Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 573. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 887  —  573. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um endurskoðun laga um gagnagrunn á heilbrigðissviði.

Frá Þuríði Backman.



     1.      Hefur ráðherra hafið endurskoðun á lögum um gagnagrunn á heilbrigðissviði, nr. 139/ 1998, sbr. 19. gr. laganna?
     2.      Hefur ráðherra tekið afstöðu til tímabundins rekstrarleyfis Íslenskrar erfðagreiningar til starfrækslu gagnagrunnsins?