Þskj. 995 — 621. mál.
Tillaga til þingsályktunar
um staðfestingu samnings milli Íslands og Færeyja um fiskveiðar
innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu á árinu 2008.
(Lögð fyrir Alþingi á 135. löggjafarþingi 2007–2008.)
Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að staðfesta fyrir Íslands hönd samning milli Íslands og Færeyja um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu á árinu 2008 sem gengið var frá með bréfaskiptum í Þórshöfn og Reykjavík 3. og 9. apríl 2008.
Athugasemdir við þingsályktunartillögu þessa.
Með þingsályktunartillögu þessari er leitað heimildar Alþingis til staðfestingar á samningi milli Íslands og Færeyja um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu á árinu 2008 sem gengið var frá með bréfaskiptum í Þórshöfn og Reykjavík 3. og 9. apríl 2008. Samningurinn er prentaður sem fylgiskjal með tillögu þessari.
Samningur þessi kveður á um allar heimildir aðila til veiða á uppsjávarfiski í lögsögu hvors annars á árinu 2008. Færeysk skip fá heimild til að veiða 30 þús. lestir af loðnu innan íslenskrar lögsögu á loðnuvertíðinni 2008/2009 svo fremi að leyfilegur heildarafli verði a.m.k. 500 þús. lestir. Verði leyfilegur heildarafli minni nemur hlutdeild færeyskra skipa 5% af honum. Þá fá Færeyingar heimild til að vinna loðnu um borð og landa henni til manneldis erlendis. Mega þeir þannig vinna 2/3 hluta kvótans en þó þannig að ekki fari meira en 1/3 hluti kvótans til manneldisvinnslu eftir 15. febrúar. Færeyskum skipum er heimilt á loðnuvertíðinni 2008/2009 að veiða allt að 10 þús. lestir af loðnu innan íslenskrar lögsögu úr veiðiheimildum sem fengnar eru með samningum færeyskra og grænlenskra stjórnvalda.
Samningurinn gerir einnig ráð fyrir gagnkvæmri heimild skipa hvors aðila til veiða á kolmunna og norsk-íslenskri síld innan lögsögu hins á árinu 2008.
Íslenskum skipum eru heimilar veiðar á allt að 1.300 lestum af makríl og 2.000 lestum af síld annarri en norsk-íslenskri innan færeyskrar lögsögu á árinu 2008.
Loks er í samningnum kveðið á um að hvor aðili skuli veita tveimur skipum, sem skráð eru í landi hins aðilans, leyfi til tilraunaveiða á túnfiski innan lögsögu sinnar á árinu 2008.
Samningurinn tók gildi til bráðabirgða 9. apríl 2008 og mun öðlast endanlegt gildi þegar tilkynnt hefur verið um að stjórnskipulegum skilyrðum hvors lands um sig hafi verið fullnægt.
Áður en samningur þessi var gerður var á grundvelli samnings landanna frá 1976 um heimildir Færeyinga til veiða í lögsögu Íslands ákveðið að færeyskum skipum væri heimilt að veiða 5.600 lestir af botnfiski við Ísland á árinu 2008. Heildarafli þorsks verður þó aldrei meiri en 1.200 lestir og lúðuafli aldrei meiri en 45 lestir sem er um helmings skerðing milli ára.
Fylgiskjal.
SAMNINGUR
milli Íslands og Færeyja
um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu á árinu 2008.
a. Bréf landsstjórnarmanns Færeyja til utanríkisráðherra Íslands.
Uttanríkisráðharri
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
Rauðarárstíg 25
150 Reykjavík
Ísland
Uttanríkisráðharri,
Eg loyvi mær at vísa til samráðingar millum íslendskar og føroyskar myndugleikar um fiskiveiði í íslendskum og føroyskum sjógvi í 2008.
Eg havi skilt, at semja er vorðin um fylgjandi:
„Semja
millum Ísland og Føroyar
um fiskiveiði í íslendskum og føroyskum sjógvi í 2008.
1. gr.
Loyvt er føroyskum skipum at landa veiðina til framleiðslu í Íslandi. Uttan fyri Ísland er loyvt at landa til matna ella at virka til matna um borð á føroyskum verksmiðjuskipum innan fyri 2/3 av føroysku kvotuni, sbr. 1. grein. Eftir 15. februar skal ikki meira enn 1/3 av føroysku kvotuni fara til matna uttan fyrir Ísland.
Føroyskum skipum er í lodnuvertíðini 2008/2009 loyvt at veiða upp til 10.000 tons av lodnu í hvørji vertíð í íslendskum búskaparøki við veiðiheimildum, sum eru fíngnar við samráðingum millum Føroyar og Grønland.
2. gr.
3. gr.
4. gr.
5. gr.
6. gr.
Íslendsk skip, sum veiða sambært hesi avtalu í føroyskum sjógvi, skulu fylgja somu veiðireglum, sum galda fyri føroysk skip um reiðskap og fiskileiðir.
Skipum, ið veiða eftir svartkjafti, er ikki loyvt at hava reiðskap til botnfiskaveiði um borð.
7. gr.
Áðrenn fiskiskapurin byrjar, skulu avvarðandi myndugleikar hava boð um navn á skipi saman við øðrum upplýsingum av týðningi.
Skipið skal boða frá, tá tað kemur á veiðiøkið, uppgeva knøttstøðu og veiðinøgd, sum er veidd, áðrenn komu á økið, og síðani uppgeva knøttstøðu og veiði hvønn dag. Tá skip fer av veiðiøkinum skal mett veiða verða givin upp. Nágreiniligari ásetingar um fráboðanir verða ásettar í kunngerð.“
Um tygum staðfesta, at tað, ið stendur omanfyri, er i samsvar við fatan tygara, loyvi eg mær at skjóta upp, at henda avtala fær gildi fyribils, tá svarbræv tygara hesum viðvíkjandi er dagsett og endaliga, tá boðað er frá, at stýrisskipanarligu krøvini hjá hvørjum landi eru uppfylt.
Við hávirðing,
Høgni Hoydal
landsstýrismaður
b. Svarbréf utanríkisráðherra Íslands.
Hr. landsstjórnarmaður
Høgni Hoydal
Føroya Landsstýri
Torshavn
Hr. landsstjórnarmaður.
Ég leyfi mér að vísa til bréfs yðar, dags. 3. apríl sl., sem er svohljóðandi:
„Ég leyfi mér að vísa til samtala milli íslenskra og færeyskra stjórnvalda um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu á árinu 2008.
Mér skilst að samkomulag hafi orðið um eftirfarandi samning:
„Samningur
milli Íslands og Færeyja
um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu á árinu 2008.
1. gr.
Heimilt er færeyskum skipum að landa afla sínum til vinnslu á Íslandi. Eigi er heimilt að landa til manneldisvinnslu utan Íslands eða taka til manneldisvinnslu um borð í færeyskum vinnsluskipum meira en sem nemur 2/3 hlutum af kvóta færeyskra skipa, sbr. 1. mgr. Eftir 15. febrúar skal eigi meira en 1/3 hluti af kvóta færeyskra skipa fara til manneldisvinnslu utan Íslands.
Færeyskum skipum er heimilt á loðnuvertíðinni 2008/2009 að veiða allt að 10 þús. lestir af loðnu innan efnahagslögsögu Íslands úr veiðheimildum sem fengnar eru með samningum færeyskra og grænlenskra stjórnvalda.
2. gr.
3. gr.
4. gr.
5. gr.
6. gr.
Íslensk skip, sem stunda veiðar samkvæmt samningi þessum innan færeyskrar lögsögu, skulu hlíta sömu reglum og gilda um veiðar færeyskra skipa, þar á meðal reglum um veiðarfæri og veiðisvæði.
Skipum við kolmunnaveiðar er óheimilt að hafa um borð veiðarfæri sem nota má til botnfiskveiða.
7. gr.
Áður en veiðar hefjast skal tilkynna viðkomandi yfirvöldum um nafn skips og veita aðrar upplýsingar er máli skipta.
Veiðiskip skal tilkynna um komu inn í lögsögu og staðarákvörðun og gefa upplýsingar um afla sem veiddur hefur verið fyrir komu inn í lögsöguna og síðan daglega tilkynna um staðarákvörðun og afla. Þegar farið er út úr lögsögu skal tilkynna um áætlað aflamagn. Nánar er kveðið á um tilkynningar þessar í reglugerð.“
Ef þér staðfestið að ofangreint sé skilningur yðar leyfi ég mér að leggja til að samningur þessi taki gildi til bráðabirgða þegar svarbréf yðar þar um er dagsett og endanlega þegar tilkynnt hefur verið um að stjórnskipulegum skilyrðum hvors lands um sig hafi verið endanlega fullnægt.“
Ég leyfi mér að staðfesta að ofangreint er skilningur minn og tekur samningurinn gildi til bráðabirgða í dag og endanlega þegar tilkynnt hefur verið um að stjórnskipulegum skilyrðum hvors lands um sig hafi verið endanlega fullnægt.
Virðingarfyllst,
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
utanríkisráðherra