Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 277. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Nr. 7/135.

Þskj. 1005  —  277. mál.


Þingsályktun

um samstarf milli slysavarnafélaga og björgunarsveita á sjó og landi í vestnorrænu löndunum.


    Alþingi skorar á ríkisstjórnina að gera samkomulag við landsstjórnir Færeyja og Grænlands um að stuðla að og styrkja samstarf slysavarnafélaga og björgunarsveita á sjó og landi í löndunum þremur.

Samþykkt á Alþingi 15. maí 2008.