135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 1179 — 532. mál.
Breytingartillögur
við frv. til l. um breyt. á l. um staðfesta samvist, nr. 87/1996, með síðari breytingum.
Frá Atla Gíslasyni.
1. Í stað 1. gr. komi 18 nýjar greinar er orðist svo:
a. (1. gr.)
Breyting á hjúskaparlögum, nr. 31/1993,
með síðari breytingum.
b. (2. gr.)
1. málsl. 7. gr. laganna orðast svo: Stofna má til hjúskapar þegar hjónaefni hafa náð 18 ára aldri.
c. (3. gr.)
Brottfall laga um staðfesta samvist, nr. 87/1996,
með síðari breytingum.
d. (4. gr.)
Breyting á lögum um lögheimili, nr. 21/1990,
með síðari breytingum.
e. (5. gr.)
Breyting á lögum um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins,
nr. 1/1997, með síðari breytingum.
f. (6. gr.)
Breyting á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi
lífeyrissjóða, nr. 129/1997, með síðari breytingum.
g. (7. gr.)
Breyting á lögum um Söfnunarsjóð lífeyrisréttinda, nr. 155/1998,
með síðari breytingum.
a. Orðin „staðfestri samvist“ í 1. málsl. 3. mgr. falla brott.
b. Í stað orðanna „stofnar til sambúðar sem jafna má til hjúskapar eða stofnar til staðfestrar samvistar“ kemur: eða stofnar til sambúðar sem jafna má til hjúskapar.
h. (8. gr.)
Breyting á lögum um Lífeyrissjóð bænda, nr. 12/1999,
með síðari breytingum.
i. (9. gr.)
Breyting á lögum um tekjuskatt, nr. 90/2003,
með síðari breytingum.
j. (10. gr.)
Orðin „og einstaklingar í staðfestri samvist“ í 1. mgr. 80. gr. laganna falla brott.
k. (11. gr.)
Breyting á lögum um erfðafjárskatt, nr. 14/2004,
með síðari breytingum.
l. (12. gr.)
Breyting á lögum um ættleiðingar, nr. 130/1999,
með síðari breytingum.
a. Orðin „einstaklingar í staðfestri samvist“ í 1. mgr. falla brott.
b. Orðin „staðfestri samvist eða“ í 2. og 3. mgr. falla brott.
m. (13. gr.)
Breyting á lögum um tæknifrjóvgun, nr. 55/1996,
með síðari breytingum.
a. Orðin „staðfestri samvist“ í a-lið 1. mgr. falla brott.
b. Orðin „staðfestri samvist eða“ í e-lið 1. mgr. falla brott.
n. (14. gr.)
Orðin „staðfestri samvist eða“ í 5. gr. laganna falla brott.
o. (15. gr.)
Orðin „í staðfestri samvist“ í 3. málsl. 1. mgr. 6. gr. laganna falla brott.
p. (16. gr.)
Orðin „staðfestri samvist eða“ í 2. mgr. 9. gr. og 4. mgr. 10. gr. laganna falla brott.
q. (17. gr.)
Breyting á barnalögum, nr. 76/2003,
með síðari breytingum.
r. (18. gr.)
Orðin „staðfestri samvist eða“ í 2. mgr. 23. gr. laganna falla brott.
2. Fyrirsögn frumvarpsins verði: Frumvarp til laga um breyting á ýmsum lagaákvæðum sem varða réttindi samkynhneigðra.