Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1227, 135. löggjafarþing 387. mál: fæðingar- og foreldraorlof (viðmiðunartímabil launa o.fl.).
Lög nr. 74 11. júní 2008.
Fullt nám samkvæmt lögum þessum er 75–100% samfellt nám, verklegt eða bóklegt, í viðurkenndri menntastofnun innan hins almenna menntakerfis á Íslandi sem stendur yfir í a.m.k. sex mánuði. Enn fremur er átt við 75–100% nám á háskólastigi og annað nám sem gerir sambærilegar kröfur til undirbúningsmenntunar og nám á háskólastigi. Einstök námskeið teljast ekki til náms.
Þátttaka á vinnumarkaði.
Þátttaka á innlendum vinnumarkaði í skilningi IV. kafla felur í sér að starfa í annarra þjónustu í a.m.k. 25% starfshlutfalli í hverjum mánuði eða að starfa við eigin rekstur, án tillits til félagsforms, í því umfangi að hlutaðeiganda er gert að standa mánaðarlega, eða með öðrum reglulegum hætti samkvæmt ákvörðun skattyfirvalda, skil á tryggingagjaldi. Fullt starf miðast við 172 vinnustundir á mánuði, en þó skal jafnan tekið tillit til fjölda vinnustunda sem samkvæmt kjarasamningi teljast fullt starf.
Til þátttöku á vinnumarkaði telst enn fremur:
Vinnumálastofnun metur á grundvelli laga um atvinnuleysistryggingar hvort foreldri hefði átt rétt á atvinnuleysisbótum hefði það skráð sig án atvinnu á þeim tíma sem um er að ræða, sbr. b-lið 2. mgr.
Tryggingastofnun ríkisins metur á grundvelli laga um almannatryggingar hvort foreldri hefði átt rétt á sjúkra- eða slysadagpeningum hefði það sótt um þá fyrir þann tíma sem um er að ræða, sbr. c-lið 2. mgr.
Tryggingastofnun ríkisins metur á grundvelli laga um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna hvort foreldri hefði átt rétt á tekjutengdum greiðslum skv. III. kafla laganna hefði það sótt um slíkar greiðslur.
Foreldrar eiga sameiginlegan rétt til fæðingarstyrks í þrjá mánuði til viðbótar fyrir hvert barn umfram eitt sem fæðist á lífi.
Foreldrar sem ættleiða eða taka í varanlegt fóstur fleiri börn en eitt á sama tíma eiga sameiginlegan rétt til fæðingarstyrks í þrjá mánuði til viðbótar fyrir hvert barn umfram eitt.
Foreldri sem nýtur greiðslna í fæðingarorlofi á ekki rétt til sjúkra- eða slysadagpeninga samkvæmt lögum um almannatryggingar.
Fjárnám óheimilt.
Óheimilt er að gera fjárnám í greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði eða fæðingarstyrk samkvæmt lögum þessum sem ekki hafa verið greiddar til foreldris. Þá er jafnframt óheimilt að taka greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði eða fæðingarstyrk til greiðslu opinberra gjalda annarra en staðgreiðslu opinberra gjalda.
Þingskjal 1227, 135. löggjafarþing 387. mál: fæðingar- og foreldraorlof (viðmiðunartímabil launa o.fl.).
Lög nr. 74 11. júní 2008.
Lög um breytingu á lögum nr. 95/2000, um fæðingar- og foreldraorlof, með síðari breytingum.
1. gr.
Í stað orðsins „Félagsmálaráðherra“ í 3. gr. laganna kemur: Félags- og tryggingamálaráðherra.2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 4. gr. laganna:- 1. mgr. verður svohljóðandi:
- Í stað orðsins „félagsmálaráðherra“ þrívegis í 2. og 4. mgr. kemur: félags- og tryggingamálaráðherra.
3. gr.
Í stað orðsins „Félagsmálaráðherra“ í 5. gr. laganna kemur: Félags- og tryggingamálaráðherra.4. gr.
Á eftir 3. mgr. 7. gr. laganna kemur ný málsgrein, 4. mgr., svohljóðandi:Fullt nám samkvæmt lögum þessum er 75–100% samfellt nám, verklegt eða bóklegt, í viðurkenndri menntastofnun innan hins almenna menntakerfis á Íslandi sem stendur yfir í a.m.k. sex mánuði. Enn fremur er átt við 75–100% nám á háskólastigi og annað nám sem gerir sambærilegar kröfur til undirbúningsmenntunar og nám á háskólastigi. Einstök námskeið teljast ekki til náms.
5. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 8. gr. laganna:- Í stað orðsins „móður“ í 2. mgr. kemur: foreldri.
- Á eftir 3. mgr. kemur ný málsgrein, 4. mgr., svohljóðandi:
- Í stað orðanna „4. mgr.“ í 7. mgr., sem verður 8. mgr., kemur: 5. mgr.
- Við greinina bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
6. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 9. gr. laganna:- Í stað orðsins „kona“ í 1. mgr. kemur: foreldri, og í stað orðsins „henni“ í sömu málsgrein kemur: því.
- 2. málsl. 2. mgr. fellur brott.
7. gr.
Í stað orðsins „félagsmálaráðherra“ í 1. mgr. 11. gr. laganna kemur: félags- og tryggingamálaráðherra.8. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 13. gr. laganna:- Í stað orðanna „2. og 4. mgr. 8. gr.“ í 1. mgr. kemur: 2. og 5. mgr. 8. gr.
- 3. málsl. 1. mgr. verður svohljóðandi: Þegar foreldri hefur töku fæðingarorlofs fyrir fæðingardag barns, sbr. 2. mgr. 8. gr., 11. gr. og 4. mgr. 17. gr., skal þó miða við þann dag er foreldrið hefur fæðingarorlof að því er það foreldri varðar.
- 2. mgr. verður svohljóðandi:
- 5. mgr. verður svohljóðandi:
- Í stað orðsins „félagsmálaráðherra“ tvívegis í 7. mgr. kemur: félags- og tryggingamálaráðherra.
- Á eftir 2. málsl. 9. mgr. bætist við nýr málsliður, svohljóðandi: Eingöngu skulu greiðslur frá vinnuveitanda sem ætlaðar eru fyrir það tímabil sem foreldri er í fæðingarorlofi koma til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði.
- Í stað „9. mgr. 19. gr.“ í 10. mgr. kemur: 12. mgr. 19. gr.
- Í stað orðanna „áætlaðan fæðingardag“ í 10. mgr. kemur: fæðingardag.
- Í stað 11. mgr. koma tvær nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
Félags- og tryggingamálaráðherra er heimilt að kveða í reglugerð nánar á um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði, svo sem um mat á starfshlutfalli sjálfstætt starfandi einstaklinga, rétt þeirra sem gegna störfum á innlendum vinnumarkaði sem eru undanskilin greiðslu tryggingagjalds lögum samkvæmt, rétt þeirra sem hafa starfað í öðrum aðildarríkjum að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. einnig gerðir sem felldar hafa verið undir VI. viðauka samningsins, aðildarríkjum að Norðurlandasamningnum um almannatryggingar, stofnsamningi Fríverslunarsamtaka Evrópu eða samningi milli ríkisstjórnar Íslands annars vegar og ríkisstjórnar Danmerkur og heimastjórnar Færeyja hins vegar og hvaða greiðslna frá vinnuveitendum heimilt sé að taka tillit til við útreikninga skv. 9. mgr.
9. gr.
Á eftir 13. gr. laganna kemur ný grein, 13. gr. a, svohljóðandi, ásamt fyrirsögn:Til þátttöku á vinnumarkaði telst enn fremur:
- orlof eða leyfi samkvæmt lögum, kjarasamningi eða ráðningarsamningi þótt ólaunað sé að hluta eða öllu leyti,
- sá tími sem foreldri fær greiddar atvinnuleysisbætur, er á biðtíma eftir slíkum bótum eða hefði átt rétt á þeim hefði foreldrið skráð sig án atvinnu samkvæmt gildandi lögum um atvinnuleysistryggingar,
- sá tími sem foreldri fær greidda sjúkra- eða slysadagpeninga, er á biðtíma eftir dagpeningum eða hefði átt rétt á þeim hefði foreldri sótt um þá til Tryggingastofnunar ríkisins samkvæmt gildandi lögum um almannatryggingar, eða fær greiðslur úr sjúkrasjóði stéttarfélags enda hafi foreldri látið af launuðum störfum af heilsufarsástæðum,
- sá tími sem foreldri nýtur bóta frá tryggingafélagi sem koma í stað launa vegna tímabundins atvinnutjóns af völdum slysa,
- sá tími er foreldri fær tekjutengdar greiðslur skv. III. kafla laga um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna eða hefði átt rétt á slíkum greiðslum hefði foreldri sótt um þær til Tryggingastofnunar ríkisins.
Vinnumálastofnun metur á grundvelli laga um atvinnuleysistryggingar hvort foreldri hefði átt rétt á atvinnuleysisbótum hefði það skráð sig án atvinnu á þeim tíma sem um er að ræða, sbr. b-lið 2. mgr.
Tryggingastofnun ríkisins metur á grundvelli laga um almannatryggingar hvort foreldri hefði átt rétt á sjúkra- eða slysadagpeningum hefði það sótt um þá fyrir þann tíma sem um er að ræða, sbr. c-lið 2. mgr.
Tryggingastofnun ríkisins metur á grundvelli laga um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna hvort foreldri hefði átt rétt á tekjutengdum greiðslum skv. III. kafla laganna hefði það sótt um slíkar greiðslur.
10. gr.
Orðin „og greiðir þá Fæðingarorlofssjóður lögbundið framlag á móti“ í 1. mgr. 14. gr. laganna falla brott.11. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 15. gr. laganna:- 2. málsl. 1. mgr. verður svohljóðandi: Vilji foreldri hefja fæðingarorlof fyrir áætlaðan fæðingardag, sbr. 2. mgr. 8. gr., ber því að tilkynna það Vinnumálastofnun þremur vikum fyrir fyrirhugaðan upphafsdag fæðingarorlofs.
- 2. mgr. verður svohljóðandi:
- Í stað orðanna „vegna tekjuára“ í 3. mgr. kemur: vegna viðmiðunartímabila.
- Við 3. mgr. bætist nýr málsliður svohljóðandi: Samþykki umsækjanda þarf fyrir öflun gagnanna.
- 5. mgr. verður svohljóðandi:
12. gr.
Í stað orðsins „Félagsmálaráðherra“ í 4. mgr. 15. gr. a laganna kemur: Félags- og tryggingamálaráðherra.13. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 15. gr. b laganna:- 1. mgr. verður svohljóðandi:
- Á eftir 1. mgr. kemur ný málsgrein, 2. mgr., svohljóðandi:
- Í stað orðsins „Félagsmálaráðherra“ í 2. mgr., sem verður 3. mgr., kemur: Félags- og tryggingamálaráðherra.
14. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 5. mgr. 17. gr. laganna:- Í stað orðsins „læknis“ í 1. málsl. kemur: sérfræðilæknis.
- Í stað orðsins „aðila“ í 2. málsl. kemur: sérfræðilækni.
15. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 18. gr. laganna:- Á eftir 1. mgr. kemur ný málsgrein, 2. mgr., svohljóðandi:
- Á eftir 2. mgr., sem verður 3. mgr., kemur ný málsgrein, 4. mgr., svohljóðandi:
- Í stað orðsins „félagsmálaráðherra“ tvívegis í 3. mgr., sem verður 5. mgr., kemur: félags- og tryggingamálaráðherra.
- Við 5. mgr., sem verður 7. mgr., bætist: sbr. þó 8. mgr.
- Á eftir 5. mgr., sem verður 7. mgr., kemur ný málsgrein, 8. mgr., svohljóðandi:
- Í stað orðanna „4. mgr.“ í 8. mgr., sem verður 11. mgr., kemur: 6. mgr.
- Við greinina bætast tvær nýjar málsgreinar, 12. og 13. mgr., svohljóðandi:
Ráðherra er heimilt að kveða í reglugerð nánar á um framkvæmd þessa ákvæðis.
16. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 19. gr. laganna:- 1. mgr. verður svohljóðandi:
- Á eftir 1. mgr. kemur ný málsgrein, 2. mgr., svohljóðandi:
- Á eftir 3. málsl. 2. mgr., sem verður 3. mgr., kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Hið sama gildir þegar foreldri hefur flutt lögheimili sitt tímabundið og stundar fjarnám við íslenskan skóla á þeim tíma enda hafi foreldri átt lögheimili hér á landi samfellt í a.m.k. fimm ár fyrir flutning og fullnægir öðrum skilyrðum um fæðingarstyrk til foreldra í fullu námi.
- Á eftir 2. mgr., sem verður 3. mgr., kemur ný málsgrein, 4. mgr., svohljóðandi:
- Í stað orðsins „félagsmálaráðherra“ tvívegis í 3. mgr., sem verður 5. mgr., kemur: félags- og tryggingamálaráðherra.
- Við 5. mgr., sem verður 7. mgr., bætist: sbr. þó 8. mgr.
- Á eftir 5. mgr., sem verður 7. mgr., kemur ný málsgrein, 8. mgr., svohljóðandi:
- Á eftir 9. mgr., sem verður 12. mgr., kemur ný málsgrein, 13. mgr., svohljóðandi:
- Í stað orðanna „4. mgr.“ í 10. mgr., sem verður 14. mgr., kemur: 6. mgr.
- Á eftir 10. mgr., sem verður 14. mgr., kemur ný málsgrein, 15. mgr., svohljóðandi:
17. gr.
Í stað 1. mgr. 21. gr. laganna koma tvær nýjar málsgreinar, svohljóðandi:Foreldrar eiga sameiginlegan rétt til fæðingarstyrks í þrjá mánuði til viðbótar fyrir hvert barn umfram eitt sem fæðist á lífi.
Foreldrar sem ættleiða eða taka í varanlegt fóstur fleiri börn en eitt á sama tíma eiga sameiginlegan rétt til fæðingarstyrks í þrjá mánuði til viðbótar fyrir hvert barn umfram eitt.
18. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 4. mgr. 22. gr. laganna:- Í stað orðsins „læknis“ í 1. málsl. kemur: sérfræðilæknis.
- Í stað orðsins „aðila“ í 2. málsl. kemur: sérfræðilækni.
19. gr.
2. mgr. 33. gr. laganna verður svohljóðandi:Foreldri sem nýtur greiðslna í fæðingarorlofi á ekki rétt til sjúkra- eða slysadagpeninga samkvæmt lögum um almannatryggingar.
20. gr.
Á eftir 33. gr. laganna kemur ný grein, 33. gr. a, svohljóðandi, ásamt fyrirsögn:21. gr.
Í stað orðsins „Félagsmálaráðherra“ í 35. gr. laganna kemur: Félags- og tryggingamálaráðherra.22. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. júní 2008 og eiga við um foreldra barna sem fæðast, eru ættleidd eða eru tekin í varanlegt fóstur 1. júní 2008 eða síðar.Samþykkt á Alþingi 29. maí 2008.