Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 621. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 1263  —  621. mál.




Nefndarálit



um till. til þál. um staðfestingu samnings milli Íslands og Færeyja um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu á árinu 2008.

Frá utanríkismálanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið.
    Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta samning milli Íslands og Færeyja um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu á árinu 2008. Samningurinn kveður á um allar heimildir aðila til veiða á uppsjávarfiski í lögsögu hvors annars á árinu 2008, gagnkvæma heimild skipa hvors aðila til veiða á kolmunna og norsk-íslenskri síld innan lögsögu hins á árinu 2008 auk þess sem hann kveður á um að hvor aðili skuli veita tveimur skipum sem skráð eru í landi hins aðilans leyfi til tilraunaveiða á túnfiski innan lögsögu sinnar á árinu 2008.
    Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.

Alþingi, 29. maí 2008.



Bjarni Benediktsson,


form., frsm.


Árni Páll Árnason.


Ragnheiður E. Árnadóttir.



Ásta R. Jóhannesdóttir.


Siv Friðleifsdóttir.


Lúðvík Bergvinsson.



Kristinn H. Gunnarsson.


Ögmundur Jónasson.


Björk Guðjónsdóttir.