Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 621. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Nr. 22/135.

Þskj. 1296  —  621. mál.


Þingsályktun

um staðfestingu samnings milli Íslands og Færeyja um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu á árinu 2008.


    Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að staðfesta fyrir Íslands hönd samning milli Íslands og Færeyja um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu á árinu 2008 sem gengið var frá með bréfaskiptum í Þórshöfn og Reykjavík 3. og 9. apríl 2008.

Samþykkt á Alþingi 30. maí 2008.