136. löggjafarþing — 79. fundur, 11. feb. 2009.
fyrirspurn á dagskrá.
Virðulegi forseti. Ég vil aðeins grennslast fyrir um það hjá forseta hvernig á því stendur að hér er á dagskrá fyrirspurn til umhverfisráðherra um uppbyggingu álvers í Helguvík og svo á sama þingfundi utandagskrárumræða til sama ráðherra um sama efni.