Greiðsluþátttaka almennings í heilbrigðiskerfinu o.fl.

Miðvikudaginn 25. febrúar 2009, kl. 13:33:45 (4190)


136. löggjafarþing — 88. fundur,  25. feb. 2009.

greiðsluþátttaka almennings í heilbrigðiskerfinu o.fl.

[13:33]
Horfa

Forseti (Guðfinna S. Bjarnadóttir):

Forseti vill taka fram að þar sem fimm hv. þingmenn hafa óskað eftir því að taka til máls um störf þingsins þá sér forseti sér þann kost vænstan að gefa þeim orðið í þeirri röð sem þeir tilkynntu skrifstofunni um fyrirspurnir sínar og jafnframt þeim þingmönnum sem þeir beina máli sínu til. Að öðru leyti gildir mælendaskrá.