136. löggjafarþing — 91. fundur,  3. mars 2009.

störf þingsins.

[13:41]
Horfa

Grétar Mar Jónsson (Fl):

Herra forseti. Hér talar fólk um ábyrgð. Hv. þm. Ásta Möller á heiður skilinn fyrir að biðjast afsökunar, en ég segi við alþingismenn og ráðherra: Þeir sem hafa stutt fiskveiðistjórnarkerfið síðustu 25 árin og staðið að því að brjóta mannréttindi á íslenskum sjómönnum eiga að segja af sér og hætta.