136. löggjafarþing — 105. fundur, 17. mars 2009.
Ríkisendurskoðun.
416. mál
Frú forseti. Þetta var eiginlega meðsvar þannig að ég veit ekki hvort ég geti svarað því. En í staðinn fyrir að auka enn frekar á kvaðirnar um opinber hlutafélög þá finnst mér meira um vert að lögunum sé framfylgt, að farið sé eftir þeim heldur en auka það enn frekar.