KH fyrir MÁ

Mánudaginn 23. mars 2009, kl. 13:01:33 (5613)

136. löggjafarþing — 110. fundur,  23. mars 2009.

Varamenn taka þingsæti.

[13:01]
Horfa

Forseti (Guðbjartur Hannesson):

Borist hefur bréf frá þingflokksformanni Samfylkingarinnar, Lúðvíki Bergvinssyni, um að Mörður Árnason, 2. þm. Reykv. s., geti ekki lengur gegnt varaþingmennsku í stað Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur. 2. varamaður flokksins í kjördæminu, Kristrún Heimisdóttir lögmaður, tekur sæti hennar á Alþingi í dag. Hún hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa á ný.