136. löggjafarþing — 111. fundur, 23. mars 2009.
kaup Exista á bréfum í Kaupþingi.
Virðulegi forseti. Það er alveg sjálfsagt að ég leggi fram fyrirspurn til Fjármálaeftirlitsins um afdrif þessa máls. En ég vil einnig vekja athygli á því að þetta mál og önnur af svipuðum toga hljóta að vera meðal þess sem sérstök rannsóknarnefnd sem starfar á vegum þingsins tekur til skoðunar og ef eitthvað saknæmt gerðist mun það væntanlega koma til kasta sérstaks saksóknara.