136. löggjafarþing — 117. fundur, 30. mars 2009.
atvinnuleysistryggingar.
376. mál
Herra forseti. Hér er verið að framlengja lög sem eru í rauninni einstæð tilraun til að taka upp hlutaatvinnuleysisbætur og ég tel það mjög brýnt. Þetta hefur verið rætt í mínum þingflokki og þar voru menn einróma sammála um að samþykkja þetta og ég samþykki þetta fyrir mitt leyti líka.