Ábyrgðarmenn

Mánudaginn 30. mars 2009, kl. 16:53:55 (6118)


136. löggjafarþing — 117. fundur,  30. mars 2009.

ábyrgðarmenn.

125. mál
[16:53]
Horfa

Pétur H. Blöndal (S) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Hv. þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa rætt þetta frumvarp mjög oft og eru mjög hlynntir framgangi þess, telja að það auki aga og ábyrgð í fjármálakerfinu og styðja það eindregið.