136. löggjafarþing — 134. fundur, 17. apr. 2009.
stjórnarskipunarlög.
385. mál
Hæstv. forseti. Tillagan sem kynnt var í nefndinni var ekki sá texti sem hv. þingmaður las hér upp heldur texti með viðbótum sem menn töldu henta að setja inn til umræðu hér í Alþingi. Við í nefndinni höfnuðum ekki þeim texta sem hér var lesinn upp, hæstv. forseti.