mannabreytingar í nefndum.
Forseta hefur borist eftirfarandi tilkynning frá þingflokksformanni Framsóknarflokksins um mannabreytingar í nefndum þingsins, samanber 16. gr. þingskapa:
Birkir J. Jónsson hverfur úr félags- og tryggingamálanefnd og tekur sæti Magnúsar Stefánssonar í efnahags- og skattanefnd.
Helga Sigrún Harðardóttir tekur sæti Birkis J. Jónssonar í félags- og trygginganefnd og sæti Magnúsar Stefánssonar í samgöngunefnd. Jafnframt tekur Magnús Stefánsson sæti í fjárlaganefnd sem fulltrúi Framsóknarflokksins en hverfur úr efnahags- og skattanefnd og samgöngunefnd.
Þessar mannabreytingar skoðast samþykktar án atkvæðagreiðslu ef enginn hreyfir andmælum.