Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 415. máls.
136. löggjafarþing 2008–2009.
Þskj. 909  —  415. mál.



Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. nr. 45/1997, um vörumerki, með síðari breytingum.

Frá viðskiptanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Láru Helgu Sveinsdóttur frá Einkaleyfastofu og Jón Ögmund Þormóðsson frá viðskiptaráðuneyti. Nefndinni bárust umsagnir frá Félagi íslenskra stórkaupmanna, Samtökum verslunar og þjónustu og Viðskiptaráði.
    Með frumvarpinu er lögð til breyting á 2. mgr. 6. gr. laga um vörumerki í þá veru að tæming réttinda vörumerkis verði bundin við EES-svæðið í stað alþjóðlegrar tæmingar. Reglan um tæmingu vörumerkjaréttar varðar rétt eiganda merkis til að stjórna frekari markaðssetningu á grundvelli einkaréttar síns. Sé vara, auðkennd tilteknu vörumerki, komin á markað fyrir atbeina eða með samþykki eiganda þess getur hann ekki haft frekari áhrif á markaðssetningu hennar (t.d. sölu, leigu, inn- eða útflutning). Gengið hefur verið út frá því í íslenskum vörumerkjarétti að tæming næði til alls heimsins en þetta er ekki tekið með skýrum hætti fram í gildandi lögum. Tæming vörumerkjaréttar byggist á rétti vörumerkjahafa skv. 4. gr. laga um vörumerki, þ.e. að aðrir en eigandi vörumerkis megi ekki heimildarlaust nota í atvinnustarfsemi tákn sem eru eins eða lík vörumerki hans.
    Samkvæmt dómi EFTA-dómstólsins 8. júlí 2008, í málum nr. E-9/07 og E-10/07, L'Oréal Norge AS og L'Oréal SA gegn Per Aarskog AS, Nille AS og Smart Club AS, samræmist alþjóðleg tæming vörumerkjaréttinda ekki ákvæði vörumerkjatilskipunar 89/104/EBE eins og dómstóllinn túlkar það, en tilskipunin er hluti EES-samningsins. Þarf því að breyta lagaákvæðinu og er með frumvarpinu lögð til lágmarksbreyting á 2. mgr. 6. gr. laganna til að samræmist dóminum.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt.
    Lúðvík Bergvinsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 2. apríl 2009.



Álfheiður Ingadóttir,


form., frsm.


Gunnar Svavarsson.


Birgir Ármannsson.



Guðfinna S. Bjarnadóttir.


Höskuldur Þórhallsson.


Árni M. Mathiesen.



Valgerður Sverrisdóttir.


Jón Magnússon.