137. löggjafarþing — 8. fundur, 28. maí 2009.
aðildarumsókn að Evrópusambandinu.
38. mál
Frú forseti. Eru ráðherrar Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs enn þá ófundnir? Eru þeir kannski með slökkt á símunum í sumarbústað með dregið fyrir gluggana? (Gripið fram í.) Ég vildi gjarnan að ráðherrar Vinstri grænna væru í salnum þegar ég ræði þetta mál (Gripið fram í.) því að það varðar þá verulega og væri gott ef hæstv. forsætisráðherra sæi sér fært að vera hérna líka.