137. löggjafarþing — 8. fundur, 28. maí 2009.
aðildarumsókn að Evrópusambandinu.
38. mál
Frú forseti. Ég vil þakka hv. formanni Framsóknarflokksins, þingmanninum Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, fyrir skýrt svar. Í raun og veru kristallast málatilbúnaður Framsóknarflokksins í þessu eina svari formannsins, þar er hinn algjörlega efnislega innstæðulausi málflutningur eins stjórnmálaflokks og eins formanns í hnotskurn, í einu andsvari hér á hinu háa Alþingi. (Gripið fram í.)