Lög um atvinnuleysistryggingar

Miðvikudaginn 03. júní 2009, kl. 14:07:16 (723)


137. löggjafarþing — 13. fundur,  3. júní 2009.

lög um atvinnuleysistryggingar.

[14:07]
Horfa

félags- og tryggingamálaráðherra (Árni Páll Árnason) (Sf):

Virðulegur forseti. Ég skal glaður láta ganga í athugun á þessu og kanna þetta mál og glaður skal ég senda hv. fyrirspyrjanda tölvupóst eða svara skriflegri fyrirspurn ef hv. fyrirspyrjandi kýs frekar. En eins og ég sagði er auðvitað mikilvægt að það leiki enginn vafi á réttarstöðunni við slíkar aðstæður.