138. löggjafarþing — 112. fundur, 27. apr. 2010.
sveitarstjórnarlög.
452. mál
Frú forseti. Það gleður mig að hv. þingmaður vill auka aga hjá sveitarfélögum og hafa allt uppi á borðum varðandi skuldbindingar þeirra en ég minnist þess að síðastliðið sumar vildi hv. þingmaður samþykkja Icesave blindandi án þess einu sinni að hafa séð það.
Ég spyr hv. þingmann: Hvernig fer þetta saman?