138. löggjafarþing — 117. fundur, 30. apr. 2010.
erfðabreyttar lífverur.
516. mál
Virðulegi forseti. Bara örstutt. Samkvæmt mínum upplýsingum hafa mjög óverulegar breytingar verið gerðar á frumvarpinu frá því að það var lagt fram og varða nánast eingöngu orðalag og uppsetningu en ekki efnisþætti frumvarpsins á nokkurn hátt. Ég deili þeirri skoðun með þingmanninum að að sjálfsögðu verði þetta vel unnið í nefndinni.