Skipun nefndar sem kanni forsendur verðtryggingar á Íslandi

Miðvikudaginn 16. júní 2010, kl. 16:52:41 (0)


138. löggjafarþing — 144. fundur,  16. júní 2010.

skipun nefndar sem kanni forsendur verðtryggingar á Íslandi.

676. mál
[16:52]
Horfa

Margrét Tryggvadóttir (Hr):

Frú forseti. Ég fagna þessari nefnd svo sem og mun taka þátt í starfi hennar en ég vil ítreka það að mér finnst tími aðgerða runninn upp. Nú þurfum við að fara að ákveða hvernig við ætlum að hafa hlutina hérna og hætta að þæfa málin í nefndum.