138. löggjafarþing — 32. fundur, 26. nóv. 2009.
tilkynning um dagskrá.
Um kl. 11 í dag, að loknum störfum þingsins, átti að fara fram umræða utan dagskrár. Það er ljóst að sá tími er liðinn en utandagskrárumræðan verður um skattlagningu á ferðaþjónustu. Málshefjandi er hv. þm. Gunnar Bragi Sveinsson. Hæstv. iðnaðarráðherra Katrín Júlíusdóttir verður til andsvara. Umræðan fer fram samkvæmt 2. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.