Fjárlög 2010

Þriðjudaginn 15. desember 2009, kl. 12:24:16 (0)


138. löggjafarþing — 44. fundur,  15. des. 2009.

fjárlög 2010.

1. mál
[12:24]
Horfa

Ólöf Nordal (S):

Virðulegi forseti. Hér er um að ræða heiðurslaunalista Alþingis sem samanstendur af íslenskum listamönnum. Allir flokkar hafa komið að því að styðja þennan lista. Það hafa þingmenn Sjálfstæðisflokksins líka gert. Við munum því greiða atkvæði með þessari tillögu og styðjum hana í þessari atkvæðagreiðslu að mestu leyti.