138. löggjafarþing — 44. fundur, 15. des. 2009.
fjárlög 2010.
1. mál
Hæstv. forseti. Hér er verið að bæta við fjármagn til Hæstaréttar. Það hefur verið gríðarlegt álag á réttinum undanfarin ár og við sjáum fram á stóraukið álag á næstunni vegna hrunsins. Þingflokkur sjálfstæðismanna styður þessa breytingu meiri hluta fjárlaganefndar og greiðir henni atkvæði sitt.