Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 530. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 1133  —  530. mál.




Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á lögum nr. 36/1978, um stimpilgjald, og lögum nr. 88/1991, um aukatekjur ríkissjóðs, með síðari breytingum.

Frá efnahags- og skattanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Guðmund Jóhann Árnason frá fjármálaráðuneyti og Jónu Björk Guðnadóttur frá Samtökum fjármálafyrirtækja. Þá hefur nefndin fengið umsagnir frá Alþýðusambandi Íslands, Neytendasamtökunum, Samtökum atvinnulífsins, Samtökum fjármálafyrirtækja og Íbúðalánasjóði.
    Í frumvarpinu er lagt til að við endurfjármögnun bílalána með nýju láni verði veitt undanþága frá stimpilgjaldi og að skilyrði undanþágunnar verði sams konar og gildir um endurfjármögnun fasteignaveðlána, sbr. álit efnahags- og skattanefndar frá 17. nóvember 2008 í tengslum við afgreiðslu laga nr. 132/2008. Í annan stað er lagt til að lagfært verði orðalag í upphafsgrein laga um aukatekjur ríkissjóðs sem kom inn með 21. gr. frumvarps er varð að lögum nr. 130/2009. Loks er lagt til að þinglýsingargjald verði fellt niður hjá þeim sem njóta eiga stimpilfrelsis samkvæmt þessu frumvarpi og ákvæði til bráðabirgða V í lögum um stimpilgjald.
    Til samræmis við umrætt bráðabirgðaákvæði leggur nefndin til að tímabilið skv. 1. gr. frumvarpsins verði frá og með 1. desember 2009 í stað 1. apríl 2010.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:



    Í stað „1. apríl 2010“ í 1. gr. komi: 1. desember 2009.

    Birkir Jón Jónsson, Pétur H. Blöndal og Tryggvi Þór Herbertsson skrifa undir álit þetta með fyrirvara.

Alþingi, 18. maí 2010.



Helgi Hjörvar,


form., frsm.


Birkir Jón Jónsson,


með fyrirvara.


Lilja Mósesdóttir.



Anna Margrét Guðjónsdóttir.


Pétur H. Blöndal,


með fyrirvara.


Sigríður Ingibjörg Ingadóttir.



Tryggvi Þór Herbertsson,


með fyrirvara.


Þór Saari.


Ögmundur Jónasson.