Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 559. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 1194  —  559. mál.




Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á húsaleigulögum, lögum um frístundabyggð og leigu lóða undir frístundahús, lögum um fjöleignarhús, lögum um húsnæðismál og lögum um félagsþjónustu.

Frá félags- og tryggingamálanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Bjarnheiði Gautadóttur frá félags- og tryggingamálaráðuneyti. Þá bárust umsagnir frá Sveitarfélaginu Skagafirði, Norðurþingi, Reykjanesbæ, Alþýðusambandi Íslands, Kópavogsbæ, kærunefnd húsnæðismála, Magnúsi Sigurðssyni, Persónuvernd, velferðarsviði Reykjavíkurborgar, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, kærunefnd fjöleignarhúsamála, úrskurðarnefnd frístundahúsamála, Bláskógabyggð, Bændasamtökum Íslands, Grindavíkurbæ, Grímsnes- og Grafningshreppi, úrskurðarnefnd félagsþjónustu sveitarfélaga, Viðskiptaráði Íslands, Sveitarfélaginu Árborg, Íbúðalánasjóði og Mosfellsbæ.
    Með frumvarpinu er lagt til að fimm úrskurðar- og kærunefndir á málefnasviði húsa- og húsnæðismála verði sameinaðar og þeim fækkað í tvær. Lagt er til að kærunefnd fjöleignarhúsamála, sbr. lög nr. 26/1994, um fjöleignarhús, kærunefnd húsaleigumála, sbr. húsaleigulög, nr. 36/1994, og úrskurðarnefnd frístundahúsamála, sbr. lög nr. 75/2008, um frístundabyggð og leigu lóða undir frístundahús, verði sameinaðar í kærunefnd húsamála. Þá er lagt til að kærunefnd húsnæðismála, sbr. lög nr. 44/1998, um húsnæðismál, og úrskurðarnefnd félagsþjónustu sveitarfélaga, sbr. lög nr. 40/1991, um félagsþjónustu sveitarfélaga, sameinist í úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála. Að lokum er lagt til að fellt verði niður 15.000 kr. kærugjald til úrskurðarnefndar frístundahúsamála.
    Nefndin hefur fjallað um málið sem ráðgert er að lækki útgjöld ríkissjóðs um 2–4 millj. kr. á ári vegna minni kostnaðar við nefndarstörf. Nefndin áréttar mikilvægi þess að hagrætt sé í starfi úrskurðar- og kærunefnda stjórnsýslunnar jafnframt því sem tryggt sé að sérþekking sé til staðar í tilteknum málaflokki við afgreiðslu mála. Telur nefndin frumvarpið framfaraskref í þessa átt þar sem nefndir eru sameinaðar en þeim sem eftir standa jafnframt gert kleift að leita ráðgjafar og kalla til sérfróða aðila sé þörf á.
    Þeim sjónarmiðum var hreyft í umsögnum að mikilvægt væri að úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála birti úrskurði sína og miðli því sem betur megi fara til félagsþjónustu sveitarfélaga en úrskurðarnefnd félagsþjónustu hefur til þessa ekki birt úrskurði sína. Umboðsmaður Alþingis vakti í áliti sínu í máli 5060/2007 athygli á nauðsyn þess að hugað yrði að því að úrskurðir nefndarinnar, sérstaklega þeir sem geta haft almenna þýðingu fyrir framkvæmd stjórnvalda, svo sem sveitarfélaga, og til skýringa á réttarstöðu borgaranna, verði gerðir aðgengilegir. Þá benti umboðsmaður á að úrskurðum æðra stjórnvalds og sjálfstæðrar úrskurðarnefndar væri ætlað að vera leiðbeinandi og sem fordæmi fyrir stjórnvöld við úrlausn sambærilegra mála framvegis og tryggja þannig réttarstöðu borgaranna. Nefndin tekur undir sjónarmið umboðsmanns og umsagnaraðila hvað þetta varðar en áréttar þó að upplýsingar geta verið viðkvæmar og því þurfi að vega þessi atriði á móti persónuverndarsjónarmiðum. Málavextir eru oft með þeim hætti að þó svo að nöfn aðila og sveitarfélags séu ekki birt eru málin persónurekjanleg. Þá eiga oft svipuð rök við og um úrskurði í barnaverndarmálum en slíkir úrskurðir eru ekki birtir. Ljóst er þó að þörf er á leiðbeinandi reglum við úrlausn mála af þessu tagi og leggur nefndin því til að úrskurðarnefndin skili ráðherra árlega skýrslu sem jafnframt verði send sveitarfélögunum. Í skýrslunni verði upplýsingar settar fram í samandregnu formi þar sem tilteknar eru helstu niðurstöður úr úrskurðum og þær reglur sem draga megi af þeim án þess að persónugreinanlegar upplýsingar komi fram.
    Þá leggur nefndin til smávægilega breytingu til leiðréttingar.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGUM:


     1.      Við 18. gr. í stað „4. mgr.“ í d-lið komi: 3. og 4. mgr.
     2.      Við 24. gr. D-liður orðist svo: Við bætast tvær nýjar málsgreinar sem orðast svo:
                 Nefndin skal eigi síðar en 15. maí ár hvert skila félags- og tryggingamálaráðherra skýrslu um störf sín og helstu niðurstöður og þær leiðbeinandi reglur sem greina má út frá úrskurðum nefndarinnar. Upplýsingar sem koma fram í skýrslunni skulu vera á samandregnu formi þannig að einstakir aðilar séu ópersónugreinanlegir. Skýrsluna skal senda sveitarfélögum og birta opinberlega.
                 Félags- og tryggingamálaráðherra er heimilt með reglugerð að setja nánari ákvæði um störf og skrifstofuhald úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála.

    Ögmundur Jónasson var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 2. júní 2010.



Sigríður Ingibjörg Ingadóttir,


varaform., frsm.


Pétur H. Blöndal.


Margrét Pétursdóttir.



Guðbjartur Hannesson.


Guðmundur Steingrímsson.


Þuríður Backman.



Unnur Brá Konráðsdóttir.


Anna Margrét Guðjónsdóttir.