Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 708. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 1504  —  708. mál.




Fyrirspurn



til dómsmála- og mannréttindaráðherra um frávísanir útlendinga.

Frá Birgittu Jónsdóttur.



     1.      Hversu mörgum útlendingum hefur verið vísað frá landi við komu til Keflavíkurflugvallar frá árinu 2000, sundurliðað eftir árum?
     2.      Hversu margir þeirra báðu um hæli hérlendis?
     3.      Tíðkast að vísa útlendingum úr landi án þess að þeir fái tækifæri til að leggja inn hælisumsókn og án þess að mál þeirra sé tekið til efnislegrar skoðunar? Ef svo er, í hvaða tilfellum er það?


Skriflegt svar óskast.