Dómstólar

Mánudaginn 17. janúar 2011, kl. 16:11:02 (0)


139. löggjafarþing — 59. fundur,  17. jan. 2011.

dómstólar.

246. mál
[16:11]
Horfa

Frsm. meiri hluta allshn. (Róbert Marshall) (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er í sjálfu sér ekkert sem kemur í veg fyrir það að að lokinni umræðu hér fari málið til nefndar. Ég mun skoða það mjög vandlega hvort ekki sé ástæða til að bregðast við þessari ósk hv. þingmanns, þá hugsanlega á fundi allsherjarnefndar sem haldinn verður á föstudaginn. Ég þakka innlegg hans í þetta mál.