139. löggjafarþing — 86. fundur, 14. mars 2011.
umfjöllun fjárlaganefndar um skýrslu Ríkisendurskoðunar.
Forseti tilkynnir að með bréfi, dags. 7. mars 2011, hefur forseti óskað eftir því við fjárlaganefnd að hún fjalli um skýrslu Ríkisendurskoðunar um innheimtu opinberra gjalda. Þetta er í samræmi við reglur um þinglega meðferð skýrslna Ríkisendurskoðunar sem forsætisnefnd samþykkti 12. febrúar 2008.