Samvinna milli ríkissjónvarpsstöðva vestnorrænu ríkjanna

Þriðjudaginn 12. apríl 2011, kl. 23:44:10 (0)


139. löggjafarþing — 110. fundur,  12. apr. 2011.

samvinna milli ríkissjónvarpsstöðva vestnorrænu ríkjanna.

481. mál
[23:44]
Horfa

Flm. (Ólína Þorvarðardóttir) (Sf):

Frú forseti. Ég mæli fyrir þingsályktunartillögu um samvinnu milli ríkissjónvarpsstöðva vestnorrænu ríkjanna þar sem Alþingi ályktar að hvetja mennta- og menningarmálaráðherra fyrir hönd Ríkisútvarpsins ohf. til að útvíkka og styrkja samstarf Ríkisútvarpsins við Útvarp Grænland, KNR, og Útvarp Færeyja, ÚF, með því að auka framboð á fréttum og fréttatengdu efni frá Færeyjum og Grænlandi. Ríkisútvarpið gerir sjónvarpsútsendingar frá Færeyjum og Grænlandi aðgengilegar í svo miklum mæli sem unnt er. Til lengri tíma litið verður stefnt að samstarfi milli stöðvanna um framleiðslu á efni svo sem sjónvarpsþáttaröðum.

Þessi tillaga er lögð fram á grundvelli ályktunar Vestnorræna ráðsins sem samþykkt var á ársfundi þess í ágúst síðastliðnum á Grænlandi.

Ríkissjónvarpsstöðvar vestnorrænu ríkjanna framleiða allar fréttaefni í einhverjum mæli. Einnig eru nokkrar sjónvarpsþáttaraðir og sjónvarpsmyndir framleiddar í löndunum þremur. Vestnorrænu ríkissjónvarpsstöðvarnar hafa unnið saman og til að mynda hafa stöðvar hvers ríkis veitt hinum aðstoð við framleiðslu fréttaefnis frá viðkomandi ríki.

Vestnorrænu ríkin eru nágrannar og eiga sér sterk menningarleg tengsl. Samgangur, m.a. ferðamennska, milli landanna er mikill og löndin eiga sér sameiginlega sögu sem og margvísleg menningarleg líkindi. Samvinna milli landanna og gagnkvæmur áhugi fer vaxandi og verði þessari þingsályktunartillögu hrint í framkvæmd mun það ekki aðeins hafa í för með sér aukna þekkingu á nágrannaríkjunum heldur mun það einnig uppfylla þörf og eftirspurn sem þegar er fyrir hendi. Ekki munu felast veruleg útgjöld í framkvæmd tillögunnar þar sem um væri að ræða samninga um skipti á eigin framleiðslu. Þetta mætti t.d. gera með samningi um að nota ákveðið magn af fréttaefni frá hinum vestnorrænu ríkissjónvarpsstöðvunum í hverri viku eða mánuði. Líklega mun falla til einhver kostnaður við umsýslu, þýðingar á efni og við að stofna til samstarfsins en á móti kemur að kostnaður við sýningar á efninu, þ.e. kaup á efni, yrði lítill sem enginn.

Ég legg til, frú forseti, að tillögunni verði vísað til hv. utanríkismálanefndar.