139. löggjafarþing — 114. fundur, 2. maí 2011.
rannsókn efnahagsbrota o.fl.
767. mál
Frú forseti. Ég las þessi ummæli hæstv. ráðherra með athygli og þótti þau dálítið skrýtin og mig langar til að hæstv. ráðherra svari því í seinni ræðu sinni, sem hann vonandi kemur upp í, hvort hann telji að Sjálfstæðisflokkurinn sé hlynntur glæpum.