Tilkynning um dagskrá

Mánudaginn 12. september 2011, kl. 10:34:46 (0)


139. löggjafarþing — 161. fundur,  12. sept. 2011.

tilkynning um dagskrá.

[10:34]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Forseti vill láta þess getið að atkvæðagreiðslur verða að loknum óundirbúnum fyrirspurnum. Hlé verður gert á þingfundi milli kl. 13 og 15 fyrir matarhlé og þingflokksfundi.

Kl. 15 í dag fer fram umræða utan dagskrár um stöðuna í viðræðum við Evrópusambandið í landbúnaðar- og sjávarútvegsmálum. Málshefjandi er hv. þm. Bjarni Benediktsson. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra Jón Bjarnason verður til andsvara. Umræðan fer fram skv. 2. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.