139. löggjafarþing — 163. fundur, 14. sept. 2011.
Stjórnarráð Íslands.
674. mál
Virðulegi forseti. Mig langar til að lesa fyrir hv. þingmann:
Innflutningur verði frjáls á þeim vörum sem þjóðin getur leyft sér að kaupa ótakmarkað.
Þetta samþykkti Framsóknarflokkurinn árið 1946. Ætlar hv. þingmaður að halda því fram að þetta sé þá enn í gildi?